Jæja pungarnir mínir núna er ég kominn með nett leið á þessum blog.central og ætla að færa mig.. nýja síðan hjá kallinum er http://heizil.bloggar.is/ og vil ég biðja ykkur konur og karlar , strákar og stelpur um að breyta linkinum mínum á blogginu ykkar ef þið eruð það gáfuð að hafa kellinn þar á bæ .. vona að þetta valdi ekki hægðartruflunum eða neitt þannig ef svo er þá kemur mér það ekkert við og vil ég ekki heyra á það minnst Kíkjið endilega á flottu síðuna mína
Þangað til næst.. verð ekki hér næst verð á http://heizil.bloggar.is/
» 0 hafa sagt sína skoðun
Jæja nú er alltof mikið að gera í vinnunni ég snérist í hringi í dag eftir daginn..en það er nú í lagi maður er ungur og ég held að ég sé bestur undir álagi ... eða held ekki veit 17. júní er næstu helgi víst og ég var fengin í skipulagningu á fullu og það er nú í lagi.. Bara pínu seint í rassinn gripið en það er nú í lagi .. maður reddar þessu.. þetta er hvort sem er atriði útúm allt land alveg eins og frekar já sveitt.. má nú alveg stokka þessa hátíð upp.. það mættu 5 eða eitthvað síðast Stokkunin verður gerð á næsta ári .. þarf bara að setja upp 17. júní nefnd þá gengur þetta upp og hægt að fá mikið af nýungum og svona .. en nóg um Nonna Sig og hans dag.. Löppin orðin fín .. fór á æfingu í kveld og fann ekki neitt.. Mikið gaman.. Leikur á morgunn á móti Neista.. vonandi vinnum við hann.. Fór suður um helgina og það kom nú á óvart þar sem ég nenni oftast ekki suður.. það var mjög gaman.. hjálpa Nanna og svona .. Sem B.T.W fór á fokkings kostum að raka garð á laugardagskvöldið .. æji hefðuð þurft að vera þarna.. var snilld.. Allavega gat skemmt mér , Ásu, Mareni, Þuru og Sófus.. í heila 2 tíma.. LOL.. hehe.. vá hvað þetta var fyndið.. en já stefnan tekin suður aftur næstu helgi erum að fara að veiða og svona.. það verður frekar gaman.. maður er að fá veiðidellu aftur .. var nú alltaf að veiða þegar ég var aðeins minni og með fleiri hár á höfðinu .. ekki samt mikið fleiri þar sem ég er með jafn þykkt hár og jaaa... Óli Ben og T.d Halli bróðir hennar mömmu.. En ja mikið gaman.. ... væri til í að fara út í sumar .. helv.. til sólarlanda.. liggja á ströndinni með einhverskonar pissleitan vökva og slappa af og vinna í Taninu.. újé.. en það verður ekki í sumar held ég .. bara vinna og vinna.. en það er í lagi..en nóg í bili .. held ég .. endilega notið þetta déskotans komment.. annars snappa ég og bind tölvuna mína við stól og sparka í hana.. allavega 5 sinnum...
Þangað til næst.. Grafalvarlegur maður í þungum þönkum.. :8
» 12 hafa sagt sína skoðun
Jæja þar fór það .. við töpuðum 2-0 fyrir Tindastól og ég er með 5 falda löpp.. ARG.. en er að koma til .. er orðinn frekar fjólublár á löppinni rosalega gaman alveg hreint.. En það er eitthvað búið að gerast hjá mér síðan síðast.. Var á skaganum frá fimmtudeginum fram á mánudag.. það var fínt hjálpa bróa og kellu að flytja og svona.. Allavega við óska þeim innilega til hamingju með híbýlið og þetta er rosa flott hjá ykkur.. það verður gaman þarna í partý í haust og vetur Mikið að gera líka eins og venjulega í vinnunni þótt ég sé nú ekki búinn að geta verið allan daginn í vinnunni í gær og í dag útaf löppinni en þetta er að koma .. maður kann bara ekki að slappa af.. !! Allt orðið grænt og fallegt í þessum bæ hér útí rassgati flott mál.. Leiðin liggur suður um helgina og kemur það á óvart ég sem er aldrei fyrir sunnan svona eiginlega aldrei.. Nei hjálpa bróa að mála bílskúrinn og svona og kannski fá sér einn eða tvo með honum og Robba a.k.a Sófus "litli" hann er flottur .. En það verður stuð .. stendur til að skella sér í veiði líka og svona .. fórum nú að veiða síðustu helgi líka en það ekki upp .. veiddum ekki görn og komum heim með Fannar fullann og öngul í rassgatinu en það er fínt.. við vorum flottir ég , Robbi og Fanni .. með stóla og allar græjur ..en veiddum ekki bröndu.. svona er þetta bara.. en vonandi hafið þið það gott og skemmtið ykkur um sjómannahelgina..
Þangað til næst.. Partýsumar held ég bara
» 5 hafa sagt sína skoðun
Jeesssss... við unnum Kára uppá skaga 3-1 í kvöld.. hörku leikur við vægast sagt toppaðstæður.. það var frekar gaman .. en þeir mega eiga það að þeir eru drullusterkir ... Nú er maður enn einu sinni kominn í sveitina bara til múttu .. kom í gærkvöldi , ákvað að vinna það sem ég þyrfti að gera bara hér þannig að ég tók bara lappaling með mér.. Alltaf gott í sveitinni .. Fannar og Elín að fara að flytja um helgina og maður verður nú að hjálpa bróðir sínum í því lætur nú ekki þekkja sig fyrir annað. Vinnan kominn á fullt og krakkarnir mæta eftir helgi.. ég er búinn að vera með smá fiðring í maganum veit ekki útaf hverju samt hef gert þetta oft áður.. en þetta er þvílíkt stress og svona oft.. en ég vinn samt best undir pressu allt að vera grænt og svona.. enda var rigning í 2 sólahringa og það var sko rigning.. nú er komið sól og hlýtt held að það hafi verið um 20 stiga hiti hér í sveitinni í dag.. sem er gott.. við búum jú á Íslandi.. næsti leikur er á þriðjudag á móti Tindastól á króknum og hann verður erfiður.. Tek Árna í bakaríið en hann er góður helvítið.. Verð í sveitinni alveg fram á mánudagsmorgunn legg af stað um 8 leytið á mánudag bara æfing kl 11.. það á sko ekki að láta okkar djamma á sunnudaginn hehe Sargent Robbi sér til þess.. En það er gott kannski .. Var að koma heim eftir að hafa verið með Robba frænda á rúntinum í 4 tíma.. kíktum aðeins á Ásu og Maren bara smá.. en hef nú ekki verið svona lengi á rúntinum síðan ég veit ekki hvenær.. !! Enda Robbi snillingur með meiru og hægt að bulla endalaust með honum mikið var rætt allavega hehe.. um eitt og annað ..!!!!!! En vonandi hafið þið það bara gott um Hvítasunnuhelgina og gangið hægt um gleðinnar dyr..
Þangað til næst .. Áfram Hvöt
» 9 hafa sagt sína skoðun